Kerfislýsing Stöðunnar

Í gildi frá 18. nóvember 2026 · útgáfa 2026-11-18

Lýsing á því hvernig bókhald er fært í Stöðunni, hvernig gögn berast um kerfið og hvaða eftirlitsþættir tryggja öryggi þeirra og rekjanleika. Viðskiptavinir Stöðunnar geyma hana með bókhaldi sínu, sbr. 7. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald og 4. og 8. gr. reglugerðar nr. 505/2013.

1.Um lýsinguna

1.1Seljandi og hönnuður kerfisins er Tape Signal ehf., kt. 660123-1480, Bollagörðum 18, 170 Seltjarnarnes. Lýsingin á við Stöðuna eins og hún er rekin á vef seljanda á þeim degi sem stendur efst. Hún er uppfærð þegar eftirlitsþáttum eða ferli gagna er breytt og eldri útgáfur eru varðveittar.

1.2Lýsingin er skrifuð fyrir viðskiptavini, bókara og endurskoðendur. Tilvísanir í greinar eiga við reglugerð nr. 505/2013 um rafræna reikninga, rafrænt bókhald, skeytamiðlun, skeytaþjónustu, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna reikninga- og bókhaldskerfa, nema annað sé tekið fram.

2.Kerfið og tengsl þess

2.1Staðan er vefkerfi. Notendur vinna í vafra; vefþjónusta (API) tekur við öllum aðgerðum, beitir aðgangsstýringu og reglum bókhaldsins og vistar gögn í PostgreSQL-gagnagrunni. Fylgiskjöl eru geymd í sama gagnagrunni. Kerfið er hýst hjá Render í Frankfurt (sjá undirvinnsluaðila).

2.2Tengsl við önnur kerfi:

KerfiHvernigHvaða gögn
BankarNotandi flytur inn yfirlit úr netbanka (gr. 2.3). Engin bein tenging.Bankafærslur inn
SkatturinnStaðan reiknar og villuprófar skil; notandi skilar á þjónustuvef Skattsins og skráir skilin í Stöðunni. Engin bein tenging.VSK-skýrslur, skilagreinar staðgreiðslu, launamiðar, drög að ársreikningi út
Lífeyrissjóðir og stéttarfélögStaðan býr til skilagreinar úr samþykktum launum og sendir þær innheimtuaðila um staðlaða vefþjónustu (skilagrein.is) þegar notandi sendir, með aðgangi sem fyrirtækið fær hjá hverjum innheimtuaðila og er geymdur dulkóðaður. Skilagrein telst aðeins send þegar innheimtuaðili staðfestir móttöku; annars skilar notandi á vef sjóðsins.Skilagreinar iðgjalda og félagsgjalda út
ViðskiptamennReikningar á PDF, sóttir og sendir af notanda. Sending í tölvupósti úr Stöðunni er ekki virk enn.Sölureikningar út
Gervigreind (Claude, ChatGPT)MCP-tenging sem notandi stofnar með OAuth 2.1 (gr. 7).Lestur og drög, innan veittra heimilda
Önnur kerfiVefþjónusta (API) og heildarafrit (gr. 2.3).Lestur og flutningur gagna

2.3Snið gagna (2. mgr. 4. gr.).

  • Bankayfirlit inn: CSV-skrár úr netbanka (UTF-8 eða Windows-1252, dálkar valdir við innlestur og íslenskt talna- og dagsetningasnið lesið) og XML-yfirlit íslenskra netbanka (AccountTransactions). Hver lína ber auðkenni sem kemur í veg fyrir tvískráningu.
  • Heildarafrit út: ZIP-skrá með öllum færslum og skrám á JSON-sniði (bokari-export-v1), fylgiskjölum eins og þeim var hlaðið upp, útgefnum reikningum á PDF-sniði og SHA-256 gildi hverrar skrár.
  • Skýrslur út: CSV og PDF (prentun).
  • Vefþjónusta: JSON yfir HTTPS, lýst í OpenAPI-skjali; MCP fyrir gervigreindartengingar.

3.Skipulag bókhaldsins

3.1Hvert fyrirtæki hefur eigið bókhald með bókhaldslyklum (lyklaramma), reikningsárum og tímabilum. Lyklaramminn byggist á hefðbundinni íslenskri flokkun og fyrirtækið getur bætt við lyklum. Hver lykill hefur tegund (eign, skuld, eigið fé, tekjur eða gjöld) sem ræður því hvar hann birtist í rekstrar- og efnahagsreikningi, og lyklum má tengja sjálfgefinn virðisaukaskattskóða. Lyklar sem kerfið notar sjálfkrafa, svo sem viðskiptakröfur og viðskiptaskuldir, eru merktir sem kerfislyklar.

3.2Fylgiskjalanúmer. Hver bókuð færsla fær næsta númer í óslitinni röð fyrirtækisins, úthlutað í sömu aðgerð og færslan er bókuð. Sölureikningar og kreditreikningar fá auk þess númer í sameiginlegri óslitinni númeraröð (16. gr.), sem er úthlutað við útgáfu en ekki þegar drög eru gerð. Eftir að fyrsti reikningurinn hefur verið gefinn út er ekki hægt að breyta næsta númeri, svo engin göt verða í röðinni.

3.3Undirbækur. Viðskiptamenn (reikningar og greiðslur), lánardrottnar (gjöld og greiðslur þeirra) og laun tengjast fjárhagsbókhaldinu sjálfkrafa við hverja bókun, um sérstaka safnlykla sem ekki eru notaðir í öðrum tilgangi (10. gr.): viðskiptakröfur, viðskiptaskuldir og lykla fyrir ógreidd laun, staðgreiðslu, lífeyrissjóði, tryggingagjald og stéttarfélög.

3.4Opnunarstaða. Þegar bókhald hefst í Stöðunni er staða efnahagsreiknings úr síðasta ársreikningi bókuð sem ein opnunarfærsla. Staða hvers bankareiknings er borin saman við fyrsta innflutta yfirlit og mismunur birtur.

3.5Tekjuskráning (7. gr. laga nr. 145/1994). Tekjur eru skráðar með útgefnum sölureikningum, sem hver fær númer í óslitinni röð og er bókaður á tekjulykil og útskatt við útgáfu. Tekjur sem berast án reiknings úr Stöðunni eru skráðar þegar bankafærslan er flokkuð á tekjulykil, studd fylgiskjali. Staðan er ekki sjóðvél eða afgreiðslukerfi; fyrirtæki sem nota slík kerfi bóka dagsuppgjör þeirra með uppgjörið sem fylgiskjal.

4.Ferill færslna

4.1Gögn verða ekki hluti bókhalds fyrr en þau eru bókuð, það er þegar færsla hefur áhrif á niðurstöðu reikninga (18. gr.). Fram að því eru þau drög sem má breyta eða eyða. Ferillinn eftir uppruna:

UppruniFerillBókun
SölureikningarDrög → (beiðni um samþykki) → útgáfa: númer úthlutað, upplýsingar um seljanda skráðar, færsla bókuð, reikningurinn læstur. Leiðrétt með kreditreikningi sem vísar í upprunalega reikninginn.Viðskiptakröfur á móti tekjum og útskatti
Gjöld og innkaupareikningarDrög með fylgiskjali → (beiðni um samþykki) → samþykkt og bókað. Greiðsla bókuð sér þegar hún er pöruð við bankafærslu.Kostnaður og innskattur á móti viðskiptaskuldum eða banka
BankafærslurInnflutningur (tvíteknar færslur síaðar frá) → pörun við reikning, gjald, laun eða skatt, eða flokkun á lykil → bókun. Kerfið sýnir hvaða bókaðar línur vantar fylgiskjal; skrá má ástæðu ef þess er ekki þörf.Banki á móti þeim lykli sem við á
LaunLaunakeyrsla reiknuð úr kjörum og skatthlutföllum ársins → samþykkt (lykilorð staðfest) → bókun → greiðsla. Skilagrein og launamiðar unnin úr samþykktum launum.Launakostnaður á móti skuldum vegna launa og launatengdra gjalda
VirðisaukaskatturSkýrsla reiknuð úr bókuðum færslum tímabils → villuprófun → samþykkt → skilað af notanda → uppgjörsfærsla.Útskattur og innskattur gerðir upp á móti skuld við ríkissjóð
DagbókarfærslurDrög → (beiðni um samþykki) → bókun.Eins og færð
ÁrsuppgjörLokun reikningsárs bókar lokafærslu og flytur afkomu á eigið fé.Lokafærsla

4.2Hver bókuð færsla geymir uppruna sinn (til dæmis reikning eða bankafærslu) og upprunaskjalið vísar á færsluna, svo rekja má hverja færslu frá fylgiskjali til fjárhagsbókhalds og til baka (3. mgr. 8. gr., 17. gr.).

5.Eftirlitsþættir

EftirlitsþátturHvernig hann virkar
Debet jafnt kreditHver færsla er villuprófuð áður en hún er bókuð, og gagnagrunnurinn hafnar ójafnri færslu.
Óbreytanlegar færslur (8. og 9. gr.)Bókuðum færslum verður hvorki breytt né eytt; gagnagrunnurinn hafnar því. Leiðrétting er ný færsla, bakfærsla með skráðri ástæðu, og færslurnar vísa hvor í aðra. Eina undantekningin er heildareyðing samkvæmt gr. 10.1.
Útgefnir reikningar (15. gr.)Útgefnum reikningi verður hvorki breytt né eytt. Upplýsingar um seljanda (nafn, heimilisfang, kennitala, VSK-númer, merki, bankareikningur og fótlína) eru skráðar á reikninginn við útgáfu, svo síðari breytingar á stillingum hafa ekki áhrif á hann. Leiðrétting fer fram með kreditreikningi.
Lokuð tímabilBókhald má læsa til tiltekins dags og reikningsárum má loka. Ekki er hægt að bóka á læst tímabil; breyting á læsingu krefst ástæðu og er skráð.
SamþykktirÚtgáfa, bókun, samþykkt launa og skil krefjast manneskju með viðeigandi hlutverk. Gervigreind getur aðeins beðið um samþykki. Þegar beðið er um samþykki fyrir reikningi, gjaldi eða launum sem nema 5 m.kr. eða meira, og fleiri en einn getur samþykkt, þarf tvo ólíka samþykkjendur. Notandi með viðeigandi hlutverk getur þó framkvæmt aðgerðina sjálfur og er það skráð. Sé drögum breytt eftir að beðið var um samþykki er eldri beiðnin dregin til baka og ný gerð.
Staðfesting auðkennisLykilorð er slegið inn aftur áður en laun eða skil til stjórnvalda eru samþykkt.
ÁbendingarKerfið varar við ef bankafærsla er bókuð á lykil þegar opinn reikningur með sömu upphæð er til, ef gjald virðist þegar bókað úr banka, og ef reikningur er óvenju hár eða textinn á ekki heima á sölureikningi.
AfstemmingBankareikningar eru afstemmdir við yfirlit og opnunarstaða borin saman við fyrsta yfirlit. Skilagreinar staðgreiðslu eru bornar saman við bókuð laun og launamiðar við skilagreinar.
AtburðaskráAllar breytingar á gögnum og stillingum eru skráðar með auðkenni þess sem framkvæmdi, tíma og, þegar við á, gervigreindartengingu. Atburðaskránni verður hvorki breytt né eytt, með sömu undantekningu og bókuðum færslum. Lestur gagna er ekki skráður.

5.1Á hverri færslu kemur fram auðkenni þess sem skráði hana, dagsetning og tími skráningar og fylgiskjalanúmer (4. mgr. 8. gr.), bæði á skjá og í útprentun.

6.Aðgangur og auðkenni

6.1Hver notandi hefur eigið auðkenni (netfang og lykilorð) og hverja færslu má rekja til þess sem skráði hana (1. mgr. 5. gr.). Aðgangi er stýrt eftir hlutverkum: eigandi, stjórnandi, bókari, bókhaldsfulltrúi, launafulltrúi og lesaðgangur. Eigandi eða stjórnandi býður notendum og ákveður hlutverk þeirra; allar breytingar á aðgangi eru skráðar.

6.2Aðgreining starfa (2. mgr. 5. gr.). Starfsmenn seljanda sem þróa og reka kerfið skrá ekki færslur í bókhald viðskiptavina. Hjá viðskiptavini er meginreglan sú að sá sem setur kerfið upp (til dæmis lyklaramma, skatthlutföll og notendur) annist ekki jafnframt skráningu gagna. Í hlutverkum Stöðunnar má aðgreina þetta. Verði ekki hjá því komist vegna smæðar fyrirtækis að sami aðili annist hvort tveggja skal fyrirtækið varðveita skriflegan rökstuðning fyrir þeim öryggisráðstöfunum sem það byggir á. Dæmi: „Vegna smæðar fyrirtækisins annast sami aðili uppsetningu og færslu bókhalds. Á móti kemur að bókuðum færslum verður ekki breytt, allar breytingar eru skráðar í atburðaskrá, breytingar á forsendum eru skráðar með fyrra og nýju gildi og bókari fer yfir bókhaldið fyrir hver skil.“

7.Gervigreindartengingar

7.1Notandi með heimild getur tengt gervigreind (til dæmis Claude eða ChatGPT) við Stöðuna með MCP-tengingu. Tengingin er stofnuð með OAuth 2.1 og PKCE, notandinn velur fyrirtæki og heimildir (lestur eða drög eftir sviðum) og getur afturkallað hana hvenær sem er.

7.2Gervigreind getur lesið gögn og búið til drög en ekki bókað, gefið út, samþykkt eða skilað. Hún getur beðið um samþykki og þá ákveður manneskja í Stöðunni.

7.3Hver aðgerð gervigreindar er skráð í atburðaskrá og virkniskrá tengingarinnar með heiti tólsins, tíma og niðurstöðu, og á drögum og færslum kemur fram að þau voru gerð í gegnum tenginguna og fyrir hvaða notanda. Texti úr fylgiskjölum, bankafærslum og frá viðskiptamönnum er meðhöndlaður sem gögn en ekki fyrirmæli.

7.4Lestur kvittana. Lestur kvittana með gervigreindarlíkaninu Claude (Anthropic) er smíðaður en ekki virkur; þangað til eru upphæðir slegnar inn. Lesturinn skilar seljanda, kennitölu, dagsetningu, upphæð, gjaldmiðli, VSK eftir þrepum, síðustu tölustöfum korts og númeri kvittunar, hverju með mati á vissu. Gildin eru yfirfarin (snið, gild kennitala, dagsetning ekki fram í tímann) áður en þau eru vistuð og manneskja getur leiðrétt þau. Kvittun er pöruð við bankafærslu þegar upphæð er sú sama, dagsetning bankafærslu er frá þremur dögum fyrir til fimm dögum eftir kaupin og nafn seljanda þekkist; ein skýr pörun er tengd sjálfkrafa og má afturkalla, annars velur manneskja. Hvorki lestur né pörun bókar neitt: drög að gjaldi úr kvittun bíða samþykkis manneskju. Fjöldi tóka (tokens) og áætlaður kostnaður hvers lesturs eru skráð í atburðaskrá.

8.Rafræn skjöl

8.1Útgefnir reikningar. Reikningar eru gefnir út rafrænt og eru rafrænt ytra frumgagn. Á prentuðu og PDF-eintaki kemur fram: „Þessi reikningur er rafrænt ytra frumgagn skv. reglugerð nr. 505/2013.“ Áritunin er prentuð með reikningnum en ekki fyrir fram. Útgefna reikninga má alltaf skoða og prenta eins og þeir voru gefnir út (16. gr.), og sendingar þeirra í tölvupósti eru skráðar á reikninginn.

8.2Móttekin skjöl. Kvittanir og reikningar frá birgjum eru vistuð óbreytt með fylgigögnum og tengd færslunni sem þau styðja (17. gr.). Hverju skjali fylgir fingrafar (SHA-256) og það verður ekki fyrir breytingum. Þegar tölvupóstur er vistaður sem fylgiskjal er búið til PDF-afrit með sendanda, viðtakanda, dagsetningu og auðkenni skeytis; afritið er innra frumgagn (3. mgr. 13. gr.).

8.3Staðan stundar ekki skeytamiðlun í skilningi 23. gr. og breytir ekki sniði skjala fyrir aðra.

8.4Kvittanir teknar á síma. Mynd af kvittun er undirbúin áður en hún er vistuð: kvittunin er fundin á myndinni, rétt af (sjónarhornsleiðrétting) og klippt að henni með spássíu, breytt í grátóna með sjálfvirkri birtuskerpu og þjöppuð. Ef kvittunin finnst ekki með vissu er öll myndin geymd, aðeins minnkuð, og merkt „ekki klippt“; notandi getur líka valið að senda upprunalegu myndina minnkaða. Langar kvittanir eru geymdar sem ein mynd. Undirbúna myndin er fylgiskjalið: henni fylgir fingrafar (SHA-256) og hún breytist ekki eftir vistun. Upprunalega myndin í síma notandans er ekki geymd í Stöðunni.

9.Forsendur kerfisins

9.1Forsendur sem útreikningar byggjast á eru sýnilegar notendum (4. mgr. 8. gr.):

  • virðisaukaskattsþrep og -kóðar, með gildistíma;
  • skatthlutföll staðgreiðslu, persónuafsláttur og tryggingagjald fyrir hvert ár, með heimild og dagsetningu sannreyningar;
  • gjalddagar og eindagar skila;
  • stillingar fyrirtækisins: lyklarammi, númeraröð reikninga, uppgjörstímabil virðisaukaskatts, læsing tímabila.

9.2Hlutföll eru geymd með gildistíma og útreikningur fyrir tímabil sem ekki hefur staðfest hlutföll er stöðvaður í stað þess að giskað sé á þau. Breytingar á stillingum fyrirtækis eru skráðar í atburðaskrá með fyrra og nýju gildi, tíma og notanda, og birtast undir Stillingar → Um kerfið.

10.Varðveisla og afrit

10.1Bókhald og fylgiskjöl eru varðveitt í sjö ár frá lokum reikningsárs (6. gr.; 20. gr. laga nr. 145/1994). Gögnum er ekki eytt sjálfkrafa, að undanskildum sýnifyrirtækjum sem búin eru til fyrir prófun. Óski viðskiptavinur eftir að gögnum hans sé eytt áður en varðveislutíma lýkur, og staðfesti að hann varðveiti bókhaldið annars staðar, er öllum gögnum fyrirtækisins eytt í einni aðgerð sem skráð er hjá seljanda.

10.2Afrit (11. gr.). Gagnagrunnurinn er afritaður daglega af hýsingaraðila með möguleika á endurheimt á tiltekinn tíma. Auk þess er heildarafrit hvers fyrirtækis, ásamt fylgiskjölum, dulkóðað (AES-256-GCM) og skrifað á hverri nóttu í aðskilda geymslu á Íslandi (Atlas Cloud), og eftir lok hvers reikningsárs er geymt eitt heildarafrit sem ekki er skrifað yfir (3. mgr. 11. gr.). Reglulega er gengið úr skugga um að endurbyggja megi gögnin úr afriti og að niðurstaða prófjafnaðar sé sú sama; síðast 2026-11-18.

10.3Afrit viðskiptavinar. Viðskiptavinur getur hvenær sem er sótt heildarafrit af bókhaldi fyrirtækis síns (Stillingar → Gögn): allar færslur, öll fylgiskjöl og útgefna reikninga, ásamt SHA-256 gildi hverrar skrár. Þar sem Staðan er hýst erlendis skal viðskiptavinur varðveita slíkt afrit á Íslandi og endurnýja það að minnsta kosti á sex mánaða fresti (20. gr. laga nr. 145/1994). Kerfið minnir á þegar nýtt afrit er tímabært og skráir hvert afrit í atburðaskrá.

10.4Læsileiki er tryggður út varðveislutímann (7. gr.): gögnin eru geymd á opnu, skjalfestu sniði (JSON og PDF) sem flytja má í önnur kerfi ef kerfi Stöðunnar breytast.

11.Fyrirspurnir og útprentun

11.1Færslur má finna eftir dagsetningu, númeri, lýsingu, lykli, uppruna og viðskiptamanni. Skýrslur sýna dagbók, hreyfingalista, prófjöfnuð, rekstrar- og efnahagsreikning, aldursgreiningu krafna og skulda, virðisaukaskatt og laun fyrir hvaða tímabil sem er.

11.2Prenta má á hverju vinnslustigi (4. mgr. 8. gr.): drög, útgefna reikninga, færslur, skýrslur, launaseðla, skilagreinar og launamiða. Skýrslur má einnig sækja á CSV-sniði.

12.Aðgangur eftirlitsaðila

12.1Endurskoðendur og aðrir sem eiga rétt á upplýsingum úr bókhaldinu geta fengið aðgang með hlutverki án endurgjalds, eða fengið heildarafrit og skýrslur (1. mgr. 12. gr.). Óski skattyfirvöld eftir gögnum útvegar viðskiptavinur þau úr Stöðunni, og seljandi aðstoðar án endurgjalds sé þess þörf, þar á meðal með afritum (2. mgr. 12. gr.).

13.Breytingar á kerfinu

13.1Breytingar á kerfinu eru gerðar í útgáfustjórnun þar sem saga hverrar breytingar er varðveitt. Kerfið hefur sjálfvirkar prófanir á reglum bókhaldsins, svo sem jöfnuði færslna, óbreytanleika og aðskilnaði fyrirtækja, sem keyrðar eru áður en breyting er gefin út.

13.2Breyting sem hefur áhrif á eftirlitsþætti eða feril gagna kallar á uppfærða kerfislýsingu. Viðskiptavinir eru látnir vita af efnislegum breytingum.

13.3Með lýsingunni fylgir:

  1. yfirlýsing seljanda um að kerfið uppfylli skilyrði reglugerðar nr. 505/2013;
  2. vinnslusamningur með lýsingu öryggisráðstafana.