Yfirlýsing seljanda bókhaldskerfis

Drög, ekki í gildi · útgáfa 2026-11-18

Drög, ekki undirrituð. Yfirlýsingin tekur gildi þegar fyrirsvarsmaður seljanda hefur undirritað hana fyrir gildandi útgáfu kerfislýsingar. Þangað til er hún ekki yfirlýsing um að kerfið uppfylli skilyrðin.

1.Yfirlýsing

Tape Signal ehf., kt. 660123-1480, Bollagörðum 18, 170 Seltjarnarnes, seljandi og hönnuður bókhaldskerfisins Stöðunnar, lýsir því yfir að kerfið uppfylli þau skilyrði sem sett eru í reglugerð nr. 505/2013 um rafræna reikninga, rafrænt bókhald, skeytamiðlun, skeytaþjónustu, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna reikninga- og bókhaldskerfa, að því leyti sem þau eiga við um kerfið, þar á meðal að:

  • hver notandi hefur sérstakt auðkenni svo að rekja megi hverja færslu til uppruna síns (5. gr.);
  • rekja má feril gagna gegnum kerfið og hvorki er hægt að breyta né eyða bókuðum færslum eða rafrænum skjölum (3. mgr. 8. gr.);
  • á hverri færslu kemur fram auðkenni þess sem skráði hana, dagsetning og tími skráningar og fylgiskjalanúmer, forsendur kerfisins eru sýnilegar og sjá má hvenær þeim var breytt, og prenta má á einstökum vinnslustigum (4. mgr. 8. gr.);
  • leiðréttingar eru gerðar með annarri færslu sem vísar í sérstakt fylgiskjal (9. gr.);
  • undirbækur tengjast fjárhagsbókhaldi reglulega um lykla sem ekki eru notaðir í öðrum tilgangi (10. gr.);
  • útgefnum reikningum verður hvorki breytt né eytt, þeir eru varðveittir og aðgengilegir eins og þeir voru gefnir út, og reikningar fá númer í óslitinni númeraröð (15. og 16. gr.).

Eina undantekningin frá óbreytanleika er heildareyðing gagna fyrirtækis sem viðskiptavinur óskar sjálfur eftir og staðfestir að hann varðveiti bókhaldið annars staðar, og eyðing sýnifyrirtækja sem búin eru til fyrir prófun (sjá kerfislýsingu, gr. 10).

Kerfinu og eftirlitsþáttum þess er lýst nánar í kerfislýsingu Stöðunnar, útgáfu 2026-11-18, sem fylgir yfirlýsingu þessari. Viðskiptavinur ber eftir sem áður ábyrgð á bókhaldi sínu og á því að varðveita gögn, afrit og fylgiskjöl samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.

2.Undirritun

Staður og dagsetning

F.h. seljanda

[nafn og starfsheiti]