Persónuverndarstefna

Í gildi frá 18. nóvember 2026 · útgáfa 2026-11-18

Hér segir hvaða persónuupplýsingar Staðan vinnur, í hvaða tilgangi, hverjir fá þær og hver réttindi þín eru. Stefnan er sett samkvæmt 13. og 14. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679, sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

1.Um stefnuna

1.1Persónuupplýsingar fara um Stöðuna í tvennum tilgangi og ábyrgðin er ólík eftir því:

  • Upplýsingar um notendur Stöðunnar, svo sem nafn, netfang og innskráningar. Þar erum við ábyrgðaraðili og þessi stefna á við (gr. 3).
  • Upplýsingar í bókhaldi viðskiptavina, svo sem um viðskiptamenn þeirra, birgja og starfsmenn. Þar er fyrirtækið sem færir bókhaldið ábyrgðaraðili og við vinnum upplýsingarnar fyrir þess hönd samkvæmt vinnslusamningi (gr. 4).

1.2Ef þú ert starfsmaður, viðskiptamaður eða birgir fyrirtækis sem notar Stöðuna og vilt vita hvað er skráð um þig, snúðu þér fyrst til þess fyrirtækis. Við aðstoðum það við að svara.

2.Hver ber ábyrgð

2.1Ábyrgðaraðili vinnslu sem þessi stefna nær til er Tape Signal ehf., kt. 660123-1480, Bollagörðum 18, 170 Seltjarnarnes. Fyrirspurnir um persónuvernd sendist á adstod@stadan.is.

2.2Við höfum ekki skipað persónuverndarfulltrúa. Fyrirspurnum um persónuvernd er svarað á netfanginu hér að ofan.

3.Upplýsingar um notendur

3.1Við vinnum eftirfarandi upplýsingar um notendur. Vísað er til 1. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 um heimild til vinnslu.

UpplýsingarTilgangurHeimild
Nafn, netfang, lykilorð (aðeins geymt sem saltað tætigildi, scrypt), tungumál, hlutverk og aðild að fyrirtækjumAð stofna og reka aðganginn og stýra því hvað hver notandi má geraSamningur (b-liður) við þann sem stofnar aðgang. Fyrir notendur sem viðskiptavinur býður: lögmætir hagsmunir viðskiptavinar og okkar af því að veita þeim þann aðgang sem viðskiptavinur ákveður (f-liður)
Hvaða útgáfu skilmálanna notandi samþykkti síðast og hvenær (persónuverndarstefnan er kynnt um leið)Að geta sýnt fram á hvað var samþykktLögmætir hagsmunir (f-liður)
Innskráningar: tími, IP-tala og vafri; misheppnaðar innskráningartilraunirÖryggi: að greina og stöðva óheimilan aðgangLögmætir hagsmunir (f-liður)
Atburðaskrá: hver breytti hverju í bókhaldinu og hvenær, líka í gegnum gervigreindartenginguRekjanleiki bókhalds, sem lög nr. 145/1994 og reglugerð nr. 505/2013 krefjast. Atburðaskráin er hluti af bókhaldi viðskiptavinar og unnin fyrir hans hönd (gr. 4)Lögmætir hagsmunir viðskiptavinar og okkar af rekjanlegu bókhaldi (f-liður)
Tengingar gervigreindar: heiti þjónustu, veittar heimildir og hvað var gertAð veita, takmarka og skrá aðgang gervigreindarSamningur (b-liður) eða lögmætir hagsmunir (f-liður), eins og í fyrstu línu
Tölvupóstur og önnur samskipti við okkurAð svara fyrirspurnum og veita þjónustuSamningur (b-liður) eða lögmætir hagsmunir (f-liður)
Nafn tengiliðar, fyrirtæki og reikningar fyrir áskriftAð innheimta áskrift og færa eigið bókhaldSamningur (b-liður) og lagaskylda okkar (c-liður)

3.2Upplýsingarnar koma frá þér sjálfum, frá þeim sem bauð þér aðgang (nafn og netfang) eða verða til þegar þú notar Stöðuna.

3.3Nafn, netfang og lykilorð eru nauðsynleg til að stofna aðgang; án þeirra er ekki hægt að nota Stöðuna. Aðrar upplýsingar verða til við notkun.

3.4Við notum ekki persónuupplýsingar til markaðssetningar þriðju aðila, seljum þær ekki og tökum engar sjálfvirkar ákvarðanir sem hafa réttaráhrif á einstaklinga eða snerta þá á sambærilegan hátt.

4.Gögn í bókhaldi viðskiptavina

4.1Í bókhaldi viðskiptavina eru meðal annars:

  • nöfn, kennitölur, heimilisföng, netföng og bankareikningar viðskiptamanna og birgja;
  • upplýsingar um starfsmenn: kennitala, laun, staðgreiðsla, lífeyrissjóður og séreign, og aðild að stéttarfélagi þegar félagsgjöld eru dregin af launum;
  • fylgiskjöl, svo sem reikningar, kvittanir og afrit af tölvupósti, sem geta innihaldið persónuupplýsingar;
  • bankafærslur, ýmist lesnar inn úr yfirliti eða, þegar sjálfvirk bankatenging verður tekin í notkun, sóttar frá banka fyrirtækisins með samþykki notanda. Þær geta borið nöfn mótaðila og texta greiðslna.

4.2Fyrirtækið sem færir bókhaldið ákveður tilgang og aðferðir vinnslunnar og ber ábyrgð á henni, þar á meðal á því að upplýsa starfsmenn sína og viðskiptamenn. Við vinnum upplýsingarnar eingöngu eftir fyrirmælum þess, eins og nánar segir í vinnslusamningi.

4.3Aðild að stéttarfélagi er viðkvæm persónuupplýsing (9. gr. reglugerðarinnar). Hún er unnin vegna skyldna launagreiðanda á sviði vinnuréttar (b-liður 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar og 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2018). Kennitölur eru notaðar vegna þess að bókhald, launavinnsla og skil til Skattsins krefjast öruggrar persónugreiningar (13. gr. laga nr. 90/2018).

5.Viðtakendur

5.1Við notum þjónustuaðila sem hýsa kerfið. Þeir vinna upplýsingar aðeins fyrir okkur og samkvæmt samningi. Listi yfir þá, hvað þeir gera og hvar gögnin eru, er á síðunni undirvinnsluaðilar, ásamt þeim sem fyrirhugað er að taka í notkun.

5.2Við afhendum stjórnvöldum upplýsingar aðeins þegar lög skylda okkur til þess, og látum viðskiptavin vita nema okkur sé það óheimilt.

5.3Notendur sem viðskiptavinur veitir aðgang, til dæmis bókari hans, sjá gögnin samkvæmt þeim heimildum sem viðskiptavinur ákveður.

5.4Þegar notandi sendir skilagrein úr Stöðunni fær viðkomandi lífeyrissjóður, stéttarfélag eða innheimtuaðili á þeirra vegum upplýsingar um þá starfsmenn sem hún nær til: nafn, kennitölu, laun, iðgjöld og félagsgjöld, og þar með upplýsingar um aðild að stéttarfélagi. Skilagrein er aðeins send þegar notandi ákveður það, og viðtakandinn ber sjálfur ábyrgð á vinnslu sinni. Aðgangur sem fyrirtæki fær hjá innheimtuaðila er geymdur dulkóðaður.

5.5Þegar kortagreiðslur verða í boði getur viðskiptavinur tengt eigin reikning hjá Mollie B.V. (Hollandi) svo viðskiptamenn hans geti greitt reikninga með korti á greiðslusíðu Mollie. Mollie er þá sjálfstæður ábyrgðaraðili fyrir greiðslu- og kortaupplýsingum, samkvæmt samningi viðskiptavinar við Mollie og persónuverndarstefnu Mollie. Staðan sendir Mollie aðeins fjárhæð, gjaldmiðil og lýsingu greiðslu (reikningsnúmer og nafn fyrirtækisins), fær til baka stöðu greiðslunnar, fjárhæð, greiðslumáta og gjöld, og fær aldrei kortanúmer. Aðgangslyklar að Mollie-reikningnum eru geymdir dulkóðaðir.

5.6Þegar sjálfvirk bankatenging verður tekin í notkun og fyrirtæki tengir banka, skráir notandi sig inn í bankanum sjálfum með rafrænum skilríkjum og veitir Enable Banking, leyfisskyldum þjónustuveitanda reikningsupplýsinga, samþykki til að lesa færslur og stöðu. Staðan fær aldrei lykilorð að netbanka og getur ekki greitt. Staðan geymir aðeins dulkóðuð auðkenni samþykkisins og hvenær það rennur út. Notandi getur aftengt bankann í Stöðunni hvenær sem er; færslur sem þegar hafa verið sóttar haldast í bókhaldinu.

6.Gervigreind

6.1Staðan sendir ekki gögn til gervigreindarþjónustu af sjálfsdáðum. Það gerist aðeins ef notandi tengir eigin þjónustu, svo sem Claude eða ChatGPT, við Stöðuna. Þá berast þau gögn sem gervigreindin les þeirri þjónustu, samkvæmt samningi notandans eða fyrirtækisins við hana. Sá þjónustuveitandi er sjálfstæður og ekki undirvinnsluaðili okkar.

6.2Það skiptir máli hvers konar áskrift er notuð:

6.3Við mælum með fyrirtækjaáskrift þegar gervigreind er tengd við bókhald. Hver tenging fær aðeins þann aðgang sem notandi veitir, er skráð í atburðaskrá og má afturkalla hvenær sem er.

6.4Lestur kvittana. Þegar lestur kvittana verður tekinn í notkun verður ein undantekning frá grein 6.1: kvittanir sem notandi sendir í Stöðuna verða lesnar með gervigreindarlíkaninu Claude frá Anthropic, sem verður þá undirvinnsluaðili okkar. Þangað til eru upphæðir slegnar inn. Aðeins er send myndin af kvittuninni, klippt að henni og grátóna (eða PDF-reikningurinn), og texti sem sími notandans las af henni. Á kvittun getur staðið nafn starfsmanns, síðustu tölustafir korts eða nafn viðskiptavinar; önnur gögn úr bókhaldinu eru ekki send. Áður en mynd er send eru andlit og bakgrunnur klippt frá þegar kvittunin finnst á myndinni, og staðsetning og önnur lýsigögn eru fjarlægð. Samkvæmt skilmálum Anthropic eru gögnin ekki notuð til að þjálfa líkön. Sjá undirvinnsluaðila.

7.Flutningur úr landi

7.1Gagnagrunnur og forrit Stöðunnar eru hýst hjá Render í gagnaveri í Frankfurt í Þýskalandi, innan Evrópska efnahagssvæðisins. Render er bandarískt fyrirtæki og hluti vinnslu þess, svo sem rekstur og þjónusta við kerfin, fer fram í Bandaríkjunum. Þegar tölvupóstþjónusta (Resend, einnig bandarískt fyrirtæki) verður tekin í notkun verða gögn um sendan póst geymd í Bandaríkjunum. Næturafrit eru geymd dulkóðuð á Íslandi hjá Atlas Cloud ehf.

7.2Sá flutningur byggist á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework), sem gildir hér á landi samkvæmt EES-samningnum, og til vara á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnarinnar. Afrit af þeim fást hjá okkur.

8.Varðveislutími

UpplýsingarHve lengi
NotandaaðgangurÁ meðan aðgangur er virkur. Eytt innan 90 daga eftir að honum er lokað, nema nafn og aðgerðir í atburðaskrá bókhalds (sjá hér að neðan).
Innskráningar (setur)Þar til setan rennur út, að hámarki 30 dögum eftir síðustu notkun.
Boðs- og endurstillingarhlekkirGilda í 7 daga (boð) eða 1 klukkustund (lykilorð). Eytt 30 dögum eftir að þeir renna út eða eru notaðir.
Sýnifyrirtæki og sýniaðgangar á vefnumEytt sjálfkrafa 7 dögum eftir að þau eru stofnuð.
Atburðaskrá og bókhald viðskiptavinaSjö ár frá lokum reikningsárs, eins og bókhaldið sjálft (20. gr. laga nr. 145/1994), eða skemur ef viðskiptavinur óskar þess og varðveitir bókhaldið annars staðar.
Reikningar okkar fyrir áskriftSjö ár frá lokum reikningsárs.
Tölvupóstur til okkarÁ meðan viðskiptasamband varir og í tvö ár eftir það.
Netþjónaskrár hýsingaraðila (meðal annars IP-tölur)Að hámarki 30 dagar.
AfritAfrit hýsingaraðila af gagnagrunninum: allt að 7 dagar. Næturafrit í aðskilinni geymslu: 35 dagar. Heildarafrit við lok reikningsárs: sjö ár, eins og bókhaldið.

9.Réttindi þín

9.1Þú átt rétt á að:

  • fá að vita hvaða upplýsingar við vinnum um þig og fá afrit af þeim;
  • fá rangar upplýsingar leiðréttar og, við tilteknar aðstæður, fá þeim eytt eða vinnslu takmarkaða;
  • fá upplýsingar sem þú lést okkur í té á tölvutæku formi (flutningsréttur).

9.2Andmælaréttur. Þú getur hvenær sem er andmælt vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum (f-liður) af ástæðum sem varða sérstakar aðstæður þínar (21. gr. reglugerðarinnar). Þá hættum við vinnslunni nema við getum sýnt fram á mikilvægar lögmætar ástæður sem ganga framar hagsmunum þínum, eða vinnslan sé nauðsynleg vegna réttarkrafna.

9.3Sendu beiðni á adstod@stadan.is. Við svörum innan mánaðar. Upplýsingum sem lög skylda okkur eða viðskiptavin til að varðveita, svo sem bókhaldi, getum við ekki eytt fyrr en varðveisluskylda fellur niður.

9.4Þú getur kvartað til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, sími 510 9600, postur@personuvernd.is, eða á island.is.

10.Öryggi

10.1Gögn hvers fyrirtækis eru aðskilin í gagnagrunninum sjálfum svo að fyrirspurn fyrir eitt fyrirtæki nær ekki til annarra. Öll samskipti eru dulkóðuð. Lykilorð eru geymd sem söltuð tætigildi (scrypt), innskráningartilraunir takmarkaðar og lykilorð staðfest aftur áður en viðkvæmar aðgerðir eru samþykktar. Nánar er sagt frá öryggisráðstöfunum í viðauka 1 við vinnslusamning.

10.2Verði öryggisbrestur sem varðar upplýsingar sem við berum ábyrgð á tilkynnum við hann Persónuvernd án ótilhlýðilegrar tafar og innan 72 klukkustunda, nema ólíklegt sé að hann leiði til áhættu fyrir réttindi og frelsi einstaklinga, og þeim sem hann varðar ef hann er líklegur til að hafa í för með sér mikla áhættu fyrir þá (27. gr. laga nr. 90/2018). Bresti sem varða bókhald viðskiptavinar tilkynnum við viðskiptavininum innan 48 klukkustunda (gr. 10 í vinnslusamningi) svo hann geti brugðist við.

11.Vafrakökur

11.1Staðan notar eina vafraköku: innskráningarköku sem er nauðsynleg til að halda þér innskráðum. Í vafranum eru auk þess geymdar stillingar eins og tungumál, útlit og síðast valið fyrirtæki. Engar rakningarkökur, auglýsingakökur eða greiningartól þriðju aðila eru notuð, og því þarf ekki að biðja um samþykki fyrir vafrakökum.

11.2Í staðbundinni útgáfu Stöðunnar eru gögnin geymd í vafranum þínum og hverfa ef þú hreinsar hann. Sýnifyrirtæki á vefnum eru geymd á netþjóni Stöðunnar og eytt sjálfkrafa eftir 7 daga.

12.Breytingar

12.1Við uppfærum stefnuna þegar vinnsla breytist. Efnislegar breytingar tilkynnum við notendum í tölvupósti eða í Stöðunni áður en þær taka gildi.