Undirvinnsluaðilar
Í gildi frá 18. nóvember 2026 · útgáfa 2026-11-18
Þjónustuaðilar sem vinna persónuupplýsingar fyrir Stöðuna, hvað þeir gera og hvar gögnin eru. Listinn er hluti af vinnslusamningi.
1.Í notkun
| Aðili | Hlutverk | Gögn | Staðsetning og flutningsgrundvöllur |
|---|---|---|---|
| Render Services, Inc.Vinnslusamningur Render | Hýsing forrits, vefþjónustu og gagnagrunns; geymsla fylgiskjala | Öll gögn í Stöðunni | Gögnin eru geymd í Frankfurt í Þýskalandi. Rekstur og þjónusta við kerfið fer að hluta fram í Bandaríkjunum, á grundvelli gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna og staðlaðra samningsákvæða. Render notar sjálft meðal annars Amazon Web Services, Google Cloud og Cloudflare. |
| Atlas Cloud ehf.Vinnslusamningur Atlas | Næturafrit af bókhaldi hvers fyrirtækis og fylgiskjölum, aðskilin frá hýsingu Stöðunnar | Öll gögn í Stöðunni, dulkóðuð (AES-256-GCM) áður en þau fara frá Stöðunni. Atlas fær ekki lykilinn og getur ekki lesið gögnin. | Í gagnaveri Borealis á Íslandi. Atlas er íslenskt fyrirtæki með alla hýsingu hér á landi og vottun samkvæmt ISO/IEC 27001; vinnslusamningur þess bannar flutning gagna út fyrir EES. Enginn flutningur úr landi. |
2.Fyrirhugað
Þessir aðilar verða teknir í notkun þegar viðkomandi virkni er tekin í gagnið. Viðskiptavinir fá tilkynningu 30 dögum áður, samkvæmt gr. 7 í vinnslusamningi.
| Aðili | Hlutverk | Gögn | Staðsetning og flutningsgrundvöllur |
|---|---|---|---|
| Resend, Inc.Vinnslusamningur Resend | Sending tölvupósts: reikningar, boð til notenda og hlekkir til að endurstilla lykilorð | Netföng viðtakenda, efni pósts og viðhengi (reikningar á PDF) | Póstur er sendur frá Írlandi (svæði eu-west-1) en gögn um sendingar eru geymd í Bandaríkjunum, á grundvelli gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna og staðlaðra samningsákvæða. |
| Enable Banking OyEnable Banking á Íslandi | Sjálfvirk bankatenging: les færslur og stöðu reikninga frá banka fyrirtækisins (PSD2) eftir að notandi skráir sig inn í bankanum með rafrænum skilríkjum og veitir samþykki. Staðan fær aldrei lykilorð að netbanka. | Reikningsnúmer, heiti reikninga, færslur (dagsetning, upphæð, texti, mótaðili) og staða þeirra reikninga sem fyrirtækið tengir; auðkenni samþykkis, sem Staðan geymir dulkóðuð | Fyrirtækið er í Finnlandi, innan Evrópska efnahagssvæðisins. Staðsetning gagnavinnslu þess verður staðfest í samningi áður en tengingin er tekin í notkun. |
| Anthropic, PBCViðskiptaskilmálar Anthropic | Lestur kvittana: gervigreindarlíkanið Claude les seljanda, dagsetningu, upphæð, VSK og kortanúmer af mynd af kvittun eða reikningi svo Staðan geti parað hana við bankafærslu. Manneskja fer yfir; ekkert er bókað sjálfkrafa. | Aðeins myndin af kvittuninni (klippt að henni og grátóna) eða PDF-reikningurinn, og texti sem sími notandans las af myndinni. Á kvittunum getur staðið nafn starfsmanns verslunar, síðustu tölustafir korts eða nafn viðskiptavinar. Engin önnur gögn úr bókhaldinu eru send. | Í Bandaríkjunum, á grundvelli staðlaðra samningsákvæða framkvæmdastjórnar ESB í vinnslusamningi Anthropic. Samkvæmt skilmálum Anthropic eru gögn sem send eru um vefþjónustu þess ekki notuð til að þjálfa líkön. |
| Hlutageymsla (S3-samhæfð) | Geymsla fylgiskjala, aðskilin frá gagnagrunninum | Fylgiskjöl | Verður valin með geymslu innan Evrópska efnahagssvæðisins, helst hér á landi. Nafn aðilans birtist hér áður en hún er tekin í notkun. |
3.Ekki undirvinnsluaðilar
Gervigreindarþjónusta sem notendur tengja sjálfir við Stöðuna, svo sem Claude frá Anthropic eða ChatGPT frá OpenAI, er ekki undirvinnsluaðili Stöðunnar. Hún fær gögn samkvæmt samningi notandans eða fyrirtækisins við þjónustuveitandann. Lestur kvittana (hér að ofan) er annað mál: þá sendir Staðan sjálf mynd af kvittun til Anthropic, og þar er Anthropic undirvinnsluaðili. Sjá persónuverndarstefnu.
Bankar og Skatturinn fá ekki gögn frá Stöðunni á meðan engin bein tenging er við þá. Notandi flytur bankayfirlit inn og skilar til Skattsins sjálfur.
Lífeyrissjóðir, stéttarfélög og aðrir innheimtuaðilar iðgjalda fá skilagreinar frá Stöðunni þegar notandi sendir þær. Þeir eru sjálfstæðir ábyrgðaraðilar að þeim gögnum, ekki undirvinnsluaðilar. Sjá persónuverndarstefnu.
Kortagreiðslur eru í undirbúningi. Þegar þær verða í boði getur fyrirtæki tengt eigin reikning hjá Mollie B.V. (Hollandi) svo viðskiptamenn þess geti greitt reikninga með korti. Mollie er þá sjálfstæður ábyrgðaraðili fyrir greiðslu- og kortaupplýsingum samkvæmt samningi fyrirtækisins við Mollie, ekki undirvinnsluaðili Stöðunnar. Staðan sendir Mollie fjárhæð, gjaldmiðil og lýsingu greiðslunnar (reikningsnúmer og nafn fyrirtækisins) og fær til baka stöðu greiðslu, fjárhæð, greiðslumáta og gjöld. Staðan fær aldrei kortanúmer. Sjá persónuverndarstefnu Mollie.
4.Breytingar
Breytingar á listanum eru tilkynntar eiganda hvers aðgangs með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara. Dagsetning síðustu breytingar er efst á síðunni.